Hróar og Vigga
23.04.2008 19:35:56 / frumurnar

Loksins

jæja þá er loksins komið að því........

við erum búinn að vera lélegustu bloggarar á landinu held ég, það er bara sjaldan þegar við erum búinn að sitja fyrir framan tölvuna allan daginn að læra að við nennum að fara að blogga.

en annars er fínt að frétta af okkur, erum á fullu í prófaundirbúningi núna og er fyrsta próf hjá okkur á mánudaginn kemur og er kominn smá kvíði í okkur bæði. við ætlum síðan að vera hérna á svæðinu í sumar en Hróar er kominn með vinnu í húsnæðissviðinu hérna á staðnum og en Vigga ætlar bara að taka því rólega í sumar.

nú fer líka að styttast í að bumbubúinn verði bifrastarbúi það er kominn mikil tilhlökkun hjá okkur báðum og fórum við í vikunni í þrívíddarsónar og fengum við alveg frábærar myndir, við fengum einnig að vita kynið og verðið þið sem ekki vitið að giska á hvort kynið er á myndum sem við vorum að setja inn. Við fórum einnig og keyptum fyrsta hlutinn fyrir littla krílið þegar við vissum hvort kynið var og fékk hróar að velja hvað var keypt :)

En við stefnum síðan að því að vera duglegri að blogga hérna og ætlum við síðan fljótlega eftir próf að stofna barnalandssíðu.

Þangað til næst

Pís to the baby in the belly


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 22:46:47 / frumurnar

Klikkun

Þvílík klikkun sem þetta er búið að vera hjá okkur það er búið að vera vitlaust að gera hjá okkur alla þessa viku og erum við lítið sem ekkert búinn að sofa síðustu daga, Þessir blessuðu kennarar okkar voru svo yndislegir að þeir settu öll stærstu verkefni á okkur í sömu vikunni og eftir þessa viku liggja enginn verkefni fyrir. en það sér loksins fyrir endann á þessu hjá okkur núna

við fórum í 20 vikna sónar inn á akranes á mánudaginn og leit allt vel út og er loksins kominn smá mynd á krílið, það var ´búið að benda okkur á að drekka jógúrt fyrir sónar til að fá smá hreyfingar og hell jeah hvað það virkaði krakkinn var sparkandi og veifandi allan tímann og var læknirinn í vandræðum með að ná nógu góðum myndum til að geta mælt stærðina, þetta var algjör snilld, en Vigga er ekki farinn að finna neinar hreyfingar að ráði ennþá en það ætti að styttast í það.

Við erum mikið að spá í því núna að skella okkur í 3D sónar nonni vinur hróars fór í svona sónar og var mjög sáttur og vorum við að skoða myndir hjá honum en hann fékk 40myndir og video.

Svo vorum við að fjárfesta í nýjum bíl og fengum við okkur Skoda octaviu station 4x4 og veitir ekkert af því þegar barnið er komið og aþena er ennþá að stækka :)

en annars er lítið annað að frétta og látum við heyra í okkur aftur fljótlega

Pís to the man in the used car sale

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 00:53:58 / frumurnar

Einn góður af gömlum bifrestingi

Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi úti á landi.
Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga hvernig hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. ‘Bara einn,’ sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.
“Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund” sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.
 
“Hvað seldirðu honum eiginlega, spurði kaupfélagsstjórinn hissa?
 
“Jú, sjáðu til” sagði drengurinn, “fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Landróver. ”
Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði: ‘Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl”!!
‘Nei, nei,’ sagði strákurinn.
 
‘Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!’


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 14:53:01 / frumurnar

myndir af aþenu

það eru komnar inn myndir af henni aþenu okkar á síðuna http://www.123.is/album/display.aspx?fn=mastiff&aid=340973

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 09:27:10 / frumurnar

Bloggarar Íslands

Það er sko mikið að frétta af okkur í sveitinni, kona frá vísi.is hringdi í okkur í gær og komum við til greina til verðlauna sem bloggarar íslands, það væri sko ekki leiðinlegt að fá þann titill í safnið, og fólk vælir í okkur hvað við erum löt á skrifa á síðuna.

En annars er bara fínt að frétta af okkur ný önn byrjuð hjá okkur og náðum við öllum prófum fyrir jól og vorum mikið stolt af því enda engir smá proffar hér á ferð

Vigga er ólétt fyrir þá sem ekki það vita og er kominn mikil tilhlökkun í skötuhjúinn, hún er búinn að fara frekar vel í gegnum þetta og búinn að vera næstum alveg laus við nokkur einkenni nema það að hún svaf ekkert eftir jólin nema einhverja 2 - 3 tíma á nóttu en það er allt komið í gott lag núna sem betur fer og er hún að sofa núna í kringum 18-20 tíma á dag.

Við létum foreldra Hróars vita af þessu á aðfangadag með púsluspili sem við vorum búinn að láta setja sónarmynd á og vakti það mikla lukku´hjá öllum nema krakka greyunum sem voru bara send inn í herbergi í tölvuna á þeim tíma sem þau áttu að fá að opna pakka en þau voru sátt á endanum,  eða eftir þennan hálf tíma sem það tók að púsla púslið

 Vigga er kominn ca 15 vikur á leið og fórum við í hnakkaþykktarmælingu strax eftir áramót og kom allt eðlilega út hjá okkur og erum við búinn að fara einu sinni til ljósmóður í Borgarnesi og líst okkur bara þræl vel á aðstöðuna þar.

Við erum búinn að sækja um stærri íbúð á svæðinu og erum við að vonast eftir að komast í húsnæði sem kallast kotinn sem eru 3 herbergja íbúðir á 2 hæðum og er það soldið meira privat heldur en það sem við erum í núna, og svo verður farið í það í vor að finna nýjan bíl þar sem opelin verður orðin of lítill fyrir okkur í loka sumars með hundinn og barnið.

Aþena stækkar stöðugt og var Vigga alveg hörð á því um daginn að hún væri hætt að stækka þangað til hún sá myndir af systkinum aþenu og sá að hún er bara jafnstór og þau eru,  það fer ennþá jafnlítið fyrir henni og tekst henni að bræða alla þá sem kynnast henni þar á meðal ömmu og afa í vogunum sem ætla að fá hvolp hjá okkur þegar að því kemur.......    nei ok kannski soldið ýkt en þau eru alla vega mjög hrifinn af henni.

Kettirnir eru að verða sáttir við Aþenu í kringum sig og farnir að koma niður af borðunum til að tala aðeins við hana og láta hana ekki komast upp með neitt múður

En við erum ekkert að grínast með verðufarið hérna á bifröst, fyrir áramót þá rigndi næstum hvern einasta dag og núna er allt á kafi í snjó, Það snjóaði stanslaust í 3 daga og þurfti Hróar að fara út um helgina til að moka að ruslatunnunni sem er alveg út í horni hjá okkur af því að annars tæma ruslakarlarnir hana ekki og þetta var enginn smá mokstur

en þangað til næst ´

Pís to the snowman in spain.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 16:06:52 / frumurnar

alveg að verða búið

Jæja þá er ekki nema 1 próf eftir hjá okkur og er okkur báðum búið að ganga ágætlega hingað til.  Síðasta prófið er bókfærsla og er það fagið sem okkur kvíðir öll mest og verður gott þegar það er búið.

Fyrir utan prófin er lítið að frétta af okkur við erum lítið búinn að gera síðustu daga en að læra og fá greið dýrirn litla athygli hjá okkur núna. við erum byrjuð að hleypa köttunum út og er alvega frábært að fylgjast með þeim. Snælda fer út í nokkra klukkutíma í einu en snúlli fer bara rétt niður fyrir glugga og er sjaldan lengur úti en nokkrar mínútur sem er alveg ágæt.

Aþena gerir ekkert þessa dagana nema að stækka og eru allir að benda okkur á hvað hún er búinn að stækka en við verðum lítið vör við það, finnst hún ennþá jafn lítið og þegar við fengum hana.

svo eftir morgundaginn getur mann bara farið að hlakka til jólanna, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt bara vika til jóla........    en þetta verður líklega jafn fljótt að líða hjá, en okkur er alla vega farið að hlakka mikið til að fá gott að borða um jólin. verðum í vogunum hjá foreldrum hróars um jólinn og verðum svo í bænum á gamlárs..  eigum reyndar enn eftir að redda okkur gistingu um jólin en það reddast vonandi,,  annars verðum við bara í tjaldi með parinum á tjaldstæðinu í laugardalnum :)

Hlökkum til að sjá alla sem við sjáum um jólin, og þið sem sjáið okkur ekki.......   ykkar missir því við erum svo æðislega skemmtileg

þangað til næst

Pís to the santa claus who gave me a potato :^)


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 23:56:51 / frumurnar

Nýjar myndir

Jæja við erum loksins búinn að verða af því og setja inn myndir á síðuna koma síðan fleiri myndir á næstunni

annars er lítið að frétta af okkur erum bara á fullu í prófundirbúningi núna og er fyrsta próf hjá okkur á mánudaginn.

við látum heyra betur í okkur þegar við erum búinn í prófum

 þangað til næst

Pís to the santa claus


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 04:52:37 / frumurnar

kominn tími til...

já já við vitum að það er orðið doldið langt síðna við blogguðum síðast, málið er bara það að þessi síða er búin að vera frekar leiðinleg við okkur undanfarið Vigga er búin að skrifa ca 6-8 færslur og þær einfaldlega fara bara ekki inná síðuna (vonum að þessi festist). En það er allt gott að frétta af okkur öllum;) kettirnir eru ekkert að koma alltof nálægt henni Aþenu nema kannski þegar hún sefur. Við erum búin að vera rosa dugleg að fara í göngutúra með Aþenu höfum hana alltaf ólalausa þegar við förum af svæðinu og hún er svaka dugleg að elta okkur og fer aldrei langt í burtu og kemur þegar við köllum og svona. Hún er líka búin að stækka svakalega mikið síðan við fengum hana en hún er ekki alveg að fatta það sjálf hvað hún er að stækka mikið er ennþá að reyna að troða sér undir stólana og að kúra í í körfunni sem að kettirnir eiga frekar fyndið að horfa á hana troða sér þar ofaní:haha:

Helstu fréttirnar núna eru aðalega þær að Vigga var að brjóta tönn... Aftur, alltaf sama helv##$$% tönnin sem er að brotna:cry:, ætlum að reyna að ná í tannlækni í Borgarnesi á morgun og fá hann til að redda þessu, vonum bara að það takist.

Já svo erum við að reyna að byrja að hleypa köttunum út en þó að glugginn sé galopinn þá bara vilja þau frekar vera inni hjá mömmu og pabba;), Þau eru reyndar bæði búin að kíkja aðeins út en það var kannski bara 1-2 mínútur þá komu þau beint aftur inn, þannig að við eru ekki að hafa neinar svaka áhyggjur að þau eigi eftir að tínast, þau eru aðeins að stúdera hverfið fyrst áður en þau fara einhvað lengra ( vel upp alinn hjá okkur hehe )

jæja ég ætla að reyna að fara aftur að sofa...

ps. uppáhaldsliturinn hans Hróars er blár og Viggu er rauður...


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 00:01:22 / frumurnar

Álagið eykst

Haldiði að kallinn sé ekki búin að fá vinnu og gettiði við hvað....Afgreiðslu haha, nei segi svona, fékk vinnu sem vaktstjóri í shellskálanum í borgarnesi aðra hverja helgi. Alltaf gott að fá smá auka pening. Skólinn er alltaf á fullu, nóg að gera, nóg að læra, styttist óðfluga í prófin.... Bara mánuður í þau og svo jólafrí:D þannig að hjónakornin aðeins farinn að stressast upp sérstaklega fyrir enskun:( en við eigum eftir að rúlla þessu upp, ekki spurning.

Svo eru það náttla fréttir að nýjasta fjölskyldumeðlimnum á heimilinu henni Aþenu, hún fékk fyrsta beinið sitt í kvöld(vissum ekki af henni í ca.4 tíma eftir það :D ) en annars er hún bara algjört æði, svakalega sæt, reyndar svo sæt að það er frekar erfitt að skamma hana, en sem betur fer höfum við ekki þurft að gera mikið af því hingað til.

En kominn háttatími á liðið

no more pís...:klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 21:56:48 / frumurnar

loksins loksins loksins

jæja þá er loksins komið að því að láta aðeins heyra í okkur.  Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í náminu þannig að það hefyr verið lítill tími fyrir bloggið.

En annars er gott að frétta af okkur það sem stendur kannski hæst er að við erum flutt á nýjan stað, erum kominn niður á svæði og í aðeins minni íbúð og engann heitann pott :( en þetta er sam fínt að geta labbað í skólann á morgnanna.

Síðan er búið að bætast aðeins í fjölskylduna hjá okkur  ..........   við vorum að fá okkur hund og heitir hún Aþena og er bullmastiff tík og er sú sætasta á landinu, Hróar er að vinna í því núna að redda sér photo shop til að geta sett einhverjar myndir hérna inn af okkur

En fyrir utan það er lítið að frétta við ætlum að reyna að vera duglegri að skrifa á bloggið

þangað til næst

Pís to the pet walker


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 15:35:25 / frumurnar

loksins

Jæja það er kominn tími á að skrifa eitthvað á þessa síðu, við höfum lítinn tíma haft til að skrifa á síðuna enda búið að vera vitlaust að gera hjá okkur í skólanum sem gengur annars bara þræl vel hjá okkur báðum

En annars er lítið að frétta af okkur, Haustfagnaður Frumgreinadeildar var í gær og var matur og ball á hreðavatnsskála og skemmtum við okkur þræl vel í gær. Höddi vinur okkar kom úr bænum og var hjá okkur í nótt og skemmti sér með okkur í gær.

 Við erum að fara að flytja, Erum orðin þreytt á að vera upp í bústað aðallega það að maður nennir ekki alltaf að labba á milli og líka það að það er svo stutt öll rúminn í bústaðnum og þau eru öll vegg í vegg þannig að Hróar þarf alltaf að sofa horn í horn, en við fáum nyju íbúðina afhenta um mánaðrmót og erum við að fara að flytja í litla 2 herbergja íbúð á campus

annars er lítið annað fram undan hjá okkur nema bara lærdómur, fórum reyndar í bæinn á laugardaginn í mat hjá foreldrum viggu Kristín systir hennar er á landinu og er fjölskyldann að hittast á laugardaginn en við förum líklega aftur upp eftir strax um kvöldið

en þangað til næst

Pís tó the band at the ball last night


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 23:20:59 / frumurnar

Mikið að gera ?

Já það er víst rétt að segja að það sé búið að vera vitlaust að gera hjá okkur, það bíða okkar hvert verkefnið á eftir öðru og sjáum við ekki fyrir endann á því á næstu dögum. Annars fórum við suður  síðasta föstudag og ætluðum að gera svo mikið en komumst ekki í að gera nema helming, (eins og t.d að hitta ykkur guðrún mín) en þurftum svo að fara hingað uppeftir aftur um kvöldið þar sem verkefnahóparnir okkar voru að hittast á laugardaginn til að klára ensku verkefni

En fyrir utan námið hjá okkur er lítið að frétta þar sem við gerum lítið annað :) en við ætlum samt að reyna að vera duglegri að skrifa inn á síðuna

Þangað til síðar

Pís tú jú my feiforitt ríder


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 22:07:32 / frumurnar

Helgin búin

það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt á gervihnattaöld....   við erum að byrja 5tu viku í skólanurm en samt finnst okkur við bara vera nýbyrjuð. það er kominn ágætis keyrsla á námið núna, síðasta vika var helvíti strembin og helltust kvartanir inn til deildastjórans út af álagi sem við skyldum ekki af því að við héldum að það vissu allir hvað þeir væru að fara út í. Það er búið að vera að ítreka það við okkur síðan við byrjuðum í skólanum að þetta væri mikill vinna og að við mættum eiga von á að vera að vinna frameftir kvöldi og svo þegar kemur að því að það er eitthvað að gera þá verður allt vitlaust.

En reyndar var soldið illa staðið að verkefninu í upplýsingatækni hjá okkur þar sem það var mjög stórt verkefni og þeir sem voru að sjá Excel í fyrsta skipti voru bara í þvílíkum vandræðum með verkefnið en þeir sem voru eitthvað búnir að vinna við og excel voru ekki í vandræðum, en við vorum ekkert í miklum vandræðum með þetta og bíðum nú spennt eftir að fá einkunn fyrir verkefnið :)

En annars vorum við að fá diktafónn til að taka upp fyrirlestrana hjá okkur, við erum búinn að reyna að vera eitthvað að glósa en alltaf þegar við vorum búinn að glósa þá vorum við búinn að missa af öllu sem kennarinn var búinn að segja í millitíðinni, við kannski byrjum að glósa aftur þegar við kunnum það en foreldrar Hróars keyptu fyrir okkur diktafónn í fríhöfninni þegar þau voru úti fyrir helgi og bjargaði það okkur þvílíkt TAKK fyrir það Mamma og Pabbi

núna er einhver kvefpest að ganga á svæðinu og er Vigga líklega búinn að næla sér í hana, hún er búinn að vera slöpp í dag en er reyndar hitaluas þannig að við vonum að þetta verði bara í  dag.

en þangað til næst

Pís to the girl in the country side with the cold

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 12:44:37 / frumurnar

Geðveiki

Ef að við erum ekki að fara yfirum þá veit ég ekki hvað það er tugur verkefna sem bíða eftir okkur og við vorum að skila stóru bókfærslu verkefni í dag og við vorum að á fullu frá kl 14 í gær til 01 í nótt að klára það, og auðvitað þegar við vorum búinn að færa allar færslur og héldum að þetta væri að vera komið hjá okkur þá stemdi draslið ekki !!!!   ekkert lítið pirrandi að þurfa síðan að fara yfir allar helvítis færslunar til að finna villuna en hún fannst sem betur fer á endanum.

annars er voðalítið að frétta af okkur það er alltaf sama skítaveðrið hérna uppfrá þannig að við lokum okkur oftast bara einhver staðar inni og lærum.  Um helgina ætlum við að vera hérna uppfrá og verður smá frumu fyllirí á föstudag þar sem það verða margir hérna á svæðinu og er ætluninn að hittast á hreðavatnsskála og taka aðeins á því

en þangað til næst

Pís to the man in the blue tox in accounting


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 20:32:23 / frumurnar

kominn vetur

það er greinilegt að vetur konungur er farinn að banka á dyrnar, það er búið að vera rigning hjá okkur síðan við komum hingað upp eftir og í dag þá snjóaði og fórum við inn í 30 mín og þegar við komum út aftur var var kominn grá jörð ;( og við erum ennþá á sumardekkjunum haha   En annars er spáð rigningu næstu daga þannig að við höfum ekki áhyggjur af þessu

En annars er lítið að frétta af okkur búið að vera brjálað að gera hjá okkur og um leið og maður er búinn með eitt verkefni og heldur að maður geti andað léttar þá bíða manns bara nokkur verkefni í viðbót þannig að við erum að horfa á næstu pásu hjá okkur um jólin (aðfangadag og jóladag)

við fórum síðan í bæinn á föstudaginn síðasta og vorum að láta meta opelinn eftir að það var keyrt á okkur en við vorum dæmd í rétti og vorum við helvíti sátt með það, við hefðum aldrei haft efni á að borga þetta sjálf :(

en þangað til næst

Pís to the girl with the moccaccino in the coffee shop


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2